Konungur Kóngana:

Reykvíkingur, Akureyingur og Hafnfirðingur voru saman á bar þegar þessari spurningu var kastað fram.
"Afhverju er karlmaðurinn með Kóng á typpinu"
Reykvíkingurinn svaraði: "Það er til að veita manninum meiri ánægju."
 Akureyringurinn svaraði: "Nei, nei, nei hann er til að veita konunni meiri ánægju."
"Nei, nei, nei þið hafið báðir rangt fyrir ykkur" Sagði Hafnirðingurinn "Hann er svo að hendin renni ekki af."


Í gólfi er gaman að vera:

Jónas var í golfi með þrem vinum sínum og þeir voru að ræða það hversu erfitt var að fá konur þeirra til að samþykkja það þeir færu í golf alla morgna og flesta eftirmiðdaga líka.
Guðmundur stundi þungan sagði: ?Ég varð að kaupa BMW handa konu
minni til að fá að leika golf þegar ég vil."
Aðalsteini fannst þetta ekki mikið og sagði: ?Það var vel sloppið hjá þér. Ég varð að kaupa BMW og minkapels."
Reyni var mikið niðri fyrir: ?Þetta var vel sloppið hjá ykkur báðum. Ég varð að kaupa BMW, minkapels og demants hálsfesti."
Jónas glotti við tönn og sagði: ?Ha! Ég þurfti ekki að kaupa neitt handa konunni minni! Á hverjum morgni halla ég mér að konunni minni, hnippi í hana og segi ,Samfarir eða golf?' og hún segir strax ,Mundu eftir að hafa peysuna þína með þér.'"


Foræðisdeila:

Það var maður að reyna að fá foræði yfir barninu sínu og helt hann því mjög fast fram í réttinum að hann ætti barnið en ekki konan svo þegar dómarinn bað hann að færa rök fyrir þeirri fullyrðingu þá sagði  hann:
Herra dómari ef þú setur 100 kall í coke sjálfsala þá kemur coke dós út. Hver á dósina þú eða sjálfsalinn?


Þessvegna rak ég einkaritarann minn:

Fyrir  fimm  vikum  síðan, var fjörtíu og fimm ára afmælisdagurinn minn, og þann  morgun  vaknaði  ég frekar þungur í skapi, mér leið ekkert of vel. Ég fór fram í eldhús vitandi það að konan mín myndi gleðja mig með því að óska mér til hamingju með daginn, og sennilega hefði hún einhverja gjöf handa mér líka.
Hún sagði ekki einu sinni góðan daginn, hvað þá til hamingju með hann. Ég hugsaði "jæja ,svona verða þá eiginkonurnar með tímanum, - krakkarnir hljóta að muna hvaða dagur er". Krakkarnir komu svo í morgunmatinn, en sögðu ekki orð. Ég lagði af stað á skrifstofuna, og leið enn verr. Þegar ég kom þangað inn kom einkaritarinn minn, Jenný, á móti mér og sagði "góðann daginn forstjóri og til hamingju með daginn".  Mér leið aðeins betur, einhver mundi þó eftir afmælisdeginum mínum. Þegar komið var fram á hádegi var bankað á dyrnar hjá mér og Jenný gekk inn og sagði "Af því að veðrið er svo fallegt úti og þú átt nú einu sinni afmæli, hvað segirðu þá um að við förum út að borða, bara við tvö".  "Já bara endilega" svaraði ég, þar sem þetta var það besta sem ég hafði heyrt þennan dag.  Við fórum ekki á venjulega staðinn okkar, heldur aðeins út fyrir bæinn á lítinn aðvikinn stað. Við fengum okkur tvo Martíni og nutum matarins reglulega vel.  Á leiðinn til baka sagði Jenný "Þetta er svo fallegur dagur, þurfum við nokkuð að fara aftur á skrifstofuna?" Og ég svaraði "Nei, ekkert frekar", "Förum heim til mín" sagði hún þá.  Þegar við komum þangað fengum við okkur annan Martíni, kveiktum okkur í sígarettum og létum fara vel um okkur. Eftir smá stund sagði hún "Er þér ekki sama þó ég skreppi inn í svefnherbergi og bregði mér í eitthvað þægilegra?". "Auðvitað" svaraði ég strax.  Eftir um það bil sex mínútur kom hún aftur....haldandi á stórri afmælisköku....á eftir henni komu konan mín, krakkarnir, tengdaforeldrarnir og loks nokkrir vinir, allir syngjandi "hann á afmæli í dag" ......og þarna í sófanum sat ég......................og var aðeins í sokkunum !!!


Örlög mannskepnunnar:
Guð skapaði asnann og sagði við hann:
"Þú verður asni. Þú vinnur baki brotnu frá sólarupprás til sólarlags og berð þungar byrðar. Þú étur gras, státar ekki af neinum gáfum og lifir í 50 ár."
Og asninn svaraði: "Ég skal vera asni en að lifa í 50 ár er allt of mikið.  Hafðu þau 20."
Og Guð samþykkti það.
Guð skapaði hundinn og sagði við hann:
"Þú verður hundur. Þú gæti húss mannsins og verður besti vinur hans. Þú þiggur leifarnar sem hann réttir þér og lifir í 25 ár."
Og hundurinn svaraði: "Ég skal vera hundur en að lifa í 25 ár er allt of mikið. Hafðu þau 10."
Og Guð samþykkti það.
Guð skapaði apann og sagði við hann:
"Þú verður api. Þú sveiflar þér úr einu tré í annað og gerir ýmsar kúnstir. Þú verður skemmtilegur og lifir í 20 ár."
Og apinn svaraði: "Ég skal vera api en að lifa í 20 ár er allt of mikið. Hafðu þau 10."
Og Guð samþykkti það.
Að lokum skapaði Guð manninn og sagði við hann: "Þú verður maður, eina vitsmunaveran á jarðkringlunni. Þú notar gáfur þínar til að verða drottnari allra dýra. Þú munt ráða yfir heiminum og lifa í 20 ár."
Og maðurinn svaraði: "Ég skal vera maður en að lifa í 20 ár er allt of stutt. Veittu mér að auki þau 30 ár sem asninn vildi ekki, árin 15 sem hundurinn vildi ekki og árin 10 sem apinn vildi ekki."
Og Guð samþykkti það.
Og æ síðan lifir maðurinn í 20 ár eins og maður. Þá giftir hann sig og eyðir 30 árum eins og asni, þ.e. vinnur baki brotnu frá sólarupprás til sólarlags og ber þungar byrðar. Þegar börnin eru flutt að heiman lifir hann í 15 ár eins og hundur; gætir hússins og borðar allt sem að honum er rétt. Og eftir að hann sest í helgan stein lifir hann eins og api síðustu 10 árin, fer hús úr húsi og gerir ýmsar kúnstir til að skemmta barnabörnunum.


Kaldur dagur í helvíti:
Vesturbæingur sem hafði unnið í kyndiklefa allt sitt líf er sendur til helvítis. Á fysta deginum kemur djöfulinn að honum og sér hann brosandi.
Yfir hverju ert þú svona glaður?" spyr djöfullinn.
,,Ég bara elska þennan stað, þetta mynnir mig bara á vordag í kyndiklefanum."
Djöfullinn gengur á brott reiður og ákveður að ná sér niðri á honum. ,,Á morgun skrúfa ég hitann í botn, það ætti að kenna honum sína lexíu."
Næsta dag, kemur djöfullinn aftur að félaga okkar, en honum til mikillar undrunnar er Vesturbæingurinn í fínasta skapi, jafnvel glaðari en daginn áður ef eitthvað er.
,,Hvað nú?" spyr djöfullinn.
,,Þessi hiti er frábær! Minnir mig á sumardag í kyndiklefanum.
Djöfullinn áttar sig á því að hann hefur snúið sér kolvitlaust í þessu máli.
,,Á morgun geri ég þennan stað kaldari en vetur á Grænlandi."
Þriðja daginn kemur hann enn að vini okkar, í þetta sinn er hann skjálfandi og blár, en brosandi eyrnanna á milli.
,,Yfir hverju í fjáranum gætir þú verið ánægður nú?" Hreytir djöfullinn út úr sér fokreiður.
,,Það er nokkuð augljóst er það ekki?" svaraði Vesturbæingurinn
,,Fyrst að það er komið frost í helvíti, hlítur KR að hafa sigrað Íslandsmótið!"


Heilaga golfveislan:
Móse, Jesú og gamall maður eru að leika golf saman. Þeir koma að par 3 þar sem fallegt vatn umlykur flötina.
Móse styllir upp og neglir beint út í vatnið. Við það lyftir hann upp höndum og skilur vatnið í sundur, finnur boltann sinn og slær beint inn á flötina.
Næstur styllir Jesú upp og slær út í vatnið. Hann gengur út á vatnið og þegar hann er kominn að þeim stað er kúlan fór ofan í, flýtur hún upp á yfirborðið og hann slær inn á flötina.
Þá er komið að gamla kallinum. Hann þrumar kúlunni beint út í vatnið, en í því sem hún er að lenda í vatninu grípur silungur hana. En um leið steypir fálki sér niður og grípur silunginn. Fálkinn flýgur af stað með fenginn en þegar hann er yfir flötinni kemur elding úr heiðskýrum himninum og lendir í baki hans. Hann missir silunginn sem lendir á flötinni og kúlan rúllar úr kjafti fisksins og beint í holuna. Hola í höggi.
Jesú lítur yfir á gamla manninn og tautar ,,Fjandinn hafi það pabbi, getur þú ekki spilað golf eins og allir aðrir.


Dauði á golfvellinum:
Maður fer í golf með vini sínum, Guðna. Mörgum tímum síðar kemur hann loks heim til sín og konan hans spyr, ,,Hvað í ósköpunum tók svona langan tíma?"
Hann svarar, ,,Ó Hulda, þetta var hræðilegur eftirmiðdagur! Á þriðju holunni fékk Guðni hjartaáfall og datt niður dauður!"

,,Ástin mín, þetta hlítur að hafa verið hræðilegt fyrir þig!"
Svarar Hulda.
Maðurinn svarar, ,,Þetta var hreinasta helvíti! Fimmtán holur af því að slá boltann, draga Guðna, slá boltann, draga Guðna....."
 



Sniðugi golfarinn:
Fjórir vinnufélagar fóru í golf á hverjum sunnudagsmorgni, en eftir nokkur ár varð einn þeirra að hætta, þar sem hann tók sér ársleyfi frá fyrirtækinu og flutti til Kanaríeyja. Hinum fannst vonlaust að vera bara þrír og ákváðu því að bjóða afleysingarmanni hans að koma í stað fyrrvera síns.
Eina ,,vandamálið" var að hún var kona. En þeim til mikillar furðu sagðist hún spila golf og að hún myndi kíkja á þá næsta sunnudagsmorgunn annað hvort kl.6.30 eða 6.45.
Á sunnudeginum mætti hún kl. 6.30 og kom þeim öllum á óvart með því að leika hringinn á 67 höggum. Á barnum í klúbbhúsinu eftir hringinn, buðu þeir henni að koma aftur að viku liðinni, og hún svaraði, ,,Frábært, ég mæti annað hvort kl 6.30 eða 6.45."
Næsta sunnudag mætti hún kl. 6.30 og í þetta skiptið lék hún með vinstri og fór hringinn á 66 höggum! Á barnum eftir hringinn voru karlarnir mjög hrifnir, sérstaklega af hæfileika hennar til þess að leika jafnt með hvorri hendi sem var. Þeir spurðu hana hvernig hún ákvæði hvaða kylfur hún kæmi með hverju sinni.
,,Nú, ég hef kerfi sem klikkar aldrei. Þegar ég vakna á sunnudagsmorgnum, lít ég yfir á manninn minn sem liggur við hlið mér í rúminu. Ef að limurinn vísar til hægri, tek ég rétthentrakylfurnar. En ef hann vísar til vinstri tek ég örvhentrakylfurnar.
Þá spurðu þeir , ,,En hvað ef að hann vísar beint upp?"
,,Ef að það gerist, þá mæti ég kl. 6.45."



10 ástæður fyrir því af hverju fótbolti er betri en kynlíf:
10. Þú mátt enn spila á móti hverjum sem er eftir að þú ert giftur.
9. Í hvert sinn sem þú sérð færi máttu reyna að skora.
8. Ef að þú getur ekki lyft boltanum, þá geturðu samt skorað.
7. Þú mátt skora gegn öllum liðunum í deildinni, aftur og aftur.
6. Fótbolti er sýndur í beinni útsendingu í sjónvarpinu.
5. Það geta allir skotið á sama markið
4. Það er löglegt að hafa knattspyrnu að atvinnu.
3. Fótbolti endist í einn og hálfan tíma.
2. Þú getur sagt vinum þínum frá boltanum eftir leikinn.
og númer eitt: Tveir á einn og þrír á einn er ekkert óalgengt.


Læknamistök: 

 Læknir einn lenti í nokkrum vandræðum er viðhaldið hans varð ólétt.
Læknirinn gaf henni því pening og bað hana að flytja til ítalíu og eignast barnið þar og hann myndi síðan sjá um þau þar, án þess að konan hans frétti af því. Hann bað viðhaldið að senda sér póstkort og skrifa spaghettí á bakhliðina, sem merki um að barnið væri fætt. 7 mánuðir liðu og þá hringdi kona læknisins í hann og sagði að það væri komið  skrítið  póstkort til þeirra. Læknirinn sagðist koma og útskýra það fyrir henni.
Er læknirinn kemur heim og fær póstkortið fær hann hjartaáfall og er sendur strax á spítala. Er hjartalæknirinn spurði konu læknisins hvað hefði orsakað áfallið, sagði hún. ,, spaghettí, spaghettí, spaghettí, spaghettí
- tvö með pylsu og kjötbollum og tvö án.


Siggi litli:

Siggi litli var á gangi úti á götu einn góðan veðurdag þegar bíl var ekið upp að honum.
Ökumaðurinn skrúfaði niður rúðuna og kallaði: "Ef þú kemur inn í bílinn, þá skal ég gefa þér 100 kall og góðan brjóstsykur. Siggi litli neitaði og gekk áfram. Stuttu seinna kom sami maður á sama bíl, stoppaði hjá Sigga og sagði: "En ef þú færð 200 krónur og tvo sleikipinna?" Drengurinn sagði manninum að láta sig í friði og hélt áfram göngu sinni.  Neðar í götunni stoppaði maðurinn aftur. "Ókei!" sagði hann. "Þetta er síðasti séns. Ég skal gefa þér fimm hundruð krónur og allt það sælgæti sem þú getur í þig látið." Siggi litli stoppaði, fór að bílnum og hallaði sér að honum. "Sko," sagði hann. "Þú keyptir Skóda, pabbi, og nú skalt þú bara taka afleiðingunum."