NOKKUR GÓÐ GULLKORN

Bjarni Fel:
Leiknum verður sjónvarpað í sjónvarpinu
Einum leik er ekki alveg ólokið
Hann sprettur úr skónum
Skotið ríður af stað
Hann varð að fara af leikvelli í leikhléinu.
Við erum stödd á leik FH og Hauka í Hafnarfirði og það eru Hafnfirðingar sem eru með boltann.

Einar Bolla:
Hafa Lakers nú loks fengið nýjan nýliða.
..og áhorfendur rísa hér úr fætum.
....og áhorfendur baula á leikinn.

Samúel Örn.
Allir leikmenn liðsins eru á annan meter.
KR-ingar eiga hornspyrnu á mjög hættulegum stað.
Hann missti boltann jafnóðum strax.
Þeir skora bara strax í byrjun á fyrstu upphafsmínútu þessa leiks.
Fyrrverandi sonur þjálfarans er á leið í annað félag.
Hann skrúfaði boltann bak við hægra eyrað á markmanninum.

Halti Björn.
Þeir eru með bandarískan Ameríkana
Það er hellingur af fullt af fólki.
Weah skallaði hann með höfðinu


Brúnka, rauðka og ljóska vinna saman á skrifstofu.  Þær taka eftir því að á hverjum degi fer fröken Sigríður yfirmaður þeirra aðeins of snemma heim úr vinnunni.  Einn daginn spjalla þær saman og sjá sér leik á borði
að  stelast fyrr úr vinnunni með því að fara stuttu á eftir fröken Sigríði. Næsta dag þegar yfirmaðurinn fer læðast þær út stuttu síðar.  Brúnkan fer heim til sín og beint í rúmið, ákveðin í því að vakna snemma næsta morgunn og nýta tímann vel.  Rauðkan notar aukatímann með því að fara á líkamsræktarstöð áður en hún fer út að borða með vini sínum.  Ljóskan fer heim, gengur inn í svefnherbergið og sér eiginman sinn í rúminu með fröken Sigríði, yfirmanni sínum. Hún lokar hurðinni og fer út.  Næsta dag ræða brúnkan og rauðkan um það að nota sömu aðferð og daginn áður.  Þær spyrja ljóskuna hvort hana langi til að fara aftur snemma heim.  "Nei" segir ljóskan.  "Það komst næstum því upp um mig í gær!"


Nokkur frábær dæmi um þróun íslenskrar tungu:

Að þykkna upp       Verða ólétt
Að fá í skrúfuna    Gera einhverja  ólétta
Að vera fokheldur   Heimskur
Afhenda              Höggva af hönd
Afturvirkni          Samkynhneigð karla
Almanak              Nektarnýlenda
Ábekingur           Hommi
Bak-tería           Hommabar
Búðingur             Verslunarmaður
Dráttarkúla               Eista
Dráttarvél               Titrari
Eigi má sköpum renna     Fær ekki  drátt
Flygill              Flugmaður
Ferðaskrifstofa           Skjalataska
Glasabarn           Barn getið  í ölæði
Handrið              Sjálfsfróun
Hangikjöt            Getnaðarlimur í afslöppun
Hleypa brúnum       Hafa hægðir
Iðrun-Iðrast        Fá niðurgang
Kóngsvörn            Forhúð
Kúlu-legur           Feitur
Kviðlingur           Fóstur
Lík-hús              Raðhús
Lóðarí               Lyftingar
Maki                 Sminkari
Margrét              Sí-grenjandi
Meinloka             Plástur
Milliriðill         Sá í miðið af 3 eiginmönnum
Nábýli               Kirkjugarður
Næturhólf            Skaut konu
Pottormar            Spagettí
Riðvörn             Skírlífsbelti
Sambúð               Kaupfélag
Samdráttur           Hópsex
Samþykkja            Saman í fýlu
Skautahlaupari      Fjöllyndur maður
Skautbúningur       Kvennærbuxur
Sukkbremsa          Eiginkona
Tíðarskarð          Skaut  konu
Undandráttur         Ótímabært sáðlát
Undaneldi            Brunarústir
Uppskafningur        Veghefilsstjóri
Upptökuheimili      Stúdíó
Upptakari            Upptökumaður í stúdíói
Úrhellir             Kanna
Úrslit               Bilun í úri
Veiðivatn           Rakspíri
Vera í samfloti          Gera  það í vatnsrúmi
Verkefni             Höfuðverkjatafla
Viskustykki              Heili
Vökustaur            Hlandsprengur að morgni


Hvernig skal drepa lífseigan silung?

Heiða var 10 ára gömul og forvitin eins og aðrar stelpur á hennar aldri.
Hún hafði stundum heyrt stærri stelpur tala um að vera með strák og þegar hún var búin að brjóta heilann um það er í nokkurn tíma, hvernig það færi fram, fór hún til móður sinnar og spurði hana um þessa hluti. Það varð lítið um svör hjá mömmunni, sem roðnaði bara og fór hjá sér. Í staðinn ráðlagði hún henni að fela sig bak við gluggatjöldin í herbergi stóru systur sinnar, þegar hún kæmi heim með strák næst. Hún gerði það og daginn eftir lýsti hún atburðarásinni fyrir mömmu sinni. Systa og vinur hennar sátu saman og töluðu í smá stund, en þá stóð hann upp, slökkti á flestum ljósum og fór að kyssa hana og faðma hana að sér. "Ég held að systa hafi verið hálf lasin, því að hann fór með höndina undir blússuna hennar, til að finna hjartað, alveg eins og læknirinn gerir, nema hvað hann er ekki eins klár og læknirinn. Hann ætlaði aldrei að finna hjartað í henni. Kannski hefur hann verið eitthvað lasinn líka, því að eftir smástund voru þau bæði farin að mása og stynja. Honum hlýtur að hafa verið kalt á hendinni, því að hann brá henni undir pilsið hennar. En þá versnaði systu bara. Hún fór að andvarpa og stundi þungan. Svo engdist hún sundur og saman og renndi sér neðar í svefnsófann. Það var þá sem hún fékk hita, því hún sagðist vera orðin sjóðandi heit. Loksins kost ég að því hvers vegna þau urðu svona veik. Lifandi silungur hafði einhvernveginn komist inn undir föt stráksins. Svo stökk hann út úr buxunum hans og stóð út í loftið, ábyggilega 20-25 sm langur. Ég get svarið það. Strákurinn greip utan um hann til hann slyppi ekki burt. Þegar systa sá hann varð hún skelfingu lostin. Hún glennti upp augun, munurinn seig galopinn niður og hún fór að ákalla Guð og svoleiðis. Hún starði á fiskinn og sagðist aldrei hafa séð neinn svona stóran. Hún ætti að sjá suma af silungunum sem við pabbi veiddum í sumar. En hvað um það, Systa hleypti í sig kjarki og reyndi að bíta hausinn af fiskinum. Allt í einu heyrðist undarleg hljóð í henni og hún lét hann lausan. Hann hefur líklega bitið hana til baka. Þá greip hún utan um silunginn með báðum höndum og hélt honum föstum, meðan strákurinn tók upp munnkörfu eða eitthvað svoleiðis upp úr vasanum og renndi henni yfir hausinn á kvikindinu, svo að það gæti ekki bitið hana aftur. Þá lagðist hún á bakið og glennti sundur lappirnar til að hún gæti klemmt silunginn saman og vinur hennar hjálpaði til með því að leggjast ofan á hana þar sem hann lá milli fótanna á henni.
En sílungurinn barðist upp á líf og dauða. Systa fór að kveina og veina og strákurinn átti fullt í fangi með að halda sér ofan á henni. Ég held að þau hafi ætlað að drepa silunginn með því að kreista hann á milli sín..
Eftir svolitla stund hættu þau að hristast til og gáfu frá sér heilmikið andvarp. Strákurinn stóð upp og mikið rétt, hann var búinn að drepa silunginn. Ég vissi að hann var dauður vegna þess að hann hékk máttlaus út úr buxnaklaufinni og eitthvað af innyflunum hékk út úr honum. Systa og strákurinn voru náttúrulega dálítið þreytt eftir bardaginn, en þegar þau voru búin að hvíla sig dálitla stund fóru þau að gæla hvort við annað.
Hann byrjaði aftur að faðma hana og kyssa. Og svi mér þá, silungurinn var ekki alveg dauður, Hann byrjaði að tútna út og þaut upp enn einu sinni, svo þau fór aftur að slást við hann. Þessir fiskar hafa ábyggilega níu líf, eins og kettirnir. Í þetta sinn reis systa upp og reyndi að kála silungnum með því að setjast ofan á hann. Eftir hálftíma baráttu tókst þeim að drepa silunginn. Ég veit að hann var endanlega dauður vegna þess að strákurinn fletti roðinu af honum og henti því í klósettið.
Mamma, afhverju ertu svona skrítin í framan?


Nunnan og Strætóbílstjórinn

Nunna kemur inn í strætó og sest beint fyrir aftan bílstjórann. Hún segir honum að hún sé dauðvona og að eina óskin sem hún eigi sé að upplifa kynlíf áður en hún deyr. Bílstjórinn samþykkir að uppfylla óskina hennar en nunnan segir honum að hún geti ekkert gert ef hann er giftur því þá komist hún ekki til himna. Bílstjórinn segir að það sé ekkert vandamál því hann sé ekki giftur. Nunnan segist líka verða að deyja jómfrú svo að hann megi bara notast við aftara gatið. Það er heldur ekkert vandamál segir bílstjórinn. Þar sem þau voru eina fólkið í strætó þá fóru þau aftast í vagninn og gengu frá sínum málum. Þegar þau höfðu lokið sér af og bílstjórinn var aftur farinn að keyra sagði hann: "Ágæta systir, ég verð að játa eitt fyrir þér. Ég er giftur og á þrjú börn." Þá svarar nunnan: "Það er ekkert mál því ég verð líka að játa eitt fyrir þér. Ég heiti Páll Óskar og er á leiðinni á grímuball."


Svona var þetta 1950
1.   Hafðu  kvöldmatinn tilbúinn á réttum tíma.  Það veitir honum þá  tilfinningu að  þú  hafir  verið að hugsa um hann og að þér sé annt um þarfir hans.  Flestir karlmenn  eru  svangir þegar þeir koma heim og tilbúinn matur er hluti af  því að láta hann finna hversu velkominn hann er heim, en það er karmönnum nauðsynlegt.

2.   Notaðu  15mín. til að snyrta þig og skipta um föt áður en hann kemur.  Hann er  að koma heim úr leiðinlegri og erfiðri vinnu og er þreyttur. Vertu svolítið hress og skemmtileg til að hressa hann við.

3.   Taktu  upp  allt  rusl og dót.  Farðu eina umferð um húsið og safnaðu  saman skólabókum,  leikföngum,  pappírsrusli  og blöðum.  Renndu svo tusku yfir borðin til  að þurrka af og þrífa svolítið.  Eiginmanni þínum mun finnast hann kominn í friðarparadís og það hefur mikið að segja fyrir hann.
 
4.   Snyrtu  börnin  til.   Það  tekur aðeins nokkrar mínútur að þrífa hendur og andlit  og  greiða  þeim.. Ef þarf, skaltu láta þau skipta um föt.  Þau eru  hans fjársjóður og hann vill sjá þau þannig.

5. Sjáðu  til  þess  að  húsið  sé  hljóðlátt. Slökktu á öllum vélum,  s.s. uppþvóttavél,  þvottavél, þurrkara og ryksugu.  Reyndu að sjá til þess að  börnin hafi hljótt.  Taktu á móti honum með glöðu brosi.


6.   Gættu þess að hella ekki yfir hann kvörtunum þegar hann kemur. Ekki heldur kvarta  þó  hann komi of seint í mat.  Þú getur verið viss um að þínar  kvartanir eru minniháttar í samanburði við það sem hann hefur þurft að þola yfir daginn.

7.   Sjáðu til þess að hann hafi það þægilegt.  Láttu hann halla sér aftur á bak í  hægindastól  eða stingdu upp á því að hann halli sér smástund í rúmið. Vertu tilbúinn með kaldan eða heitan drykk handa honum.  Bjóddu honum að klæða hann úr skónum  og  hagræddu  púðunum  undir  honum.  Ræddu við hann með rólegri, mjúkri röddu.  Leyfðu honum að slaka á.

8.  Láttu hann ráða kvöldinu.  Ekki kvarta þó hann fari ekki með þig út að borða eða  á  aðrar skemmtanir, reyndu í stað þess að skilja að hann hefur fengið sinn skerf af streitu og látum yfir daginn og þarfnast hvíldar heima.
 
10.   Markmiðið er að gera heimilið að stað þar sem eiginmaður þinn getur fundið frið og reglu og getur slakað á eftir erfiðan dag.

Þessar reglur eru teknar úr kennslubók í heimilisfræði síðan 1950.


Skilgreining á sjálfstrausti!!
Orðabók What Ever Page skilgreinir Sjálfstraust svona: maður sem kemur heim klukkan 3 að nóttu, fullur og angar af ilmvatni og slær síðan konu sína á rassinn og segir: "þú er næst."



Stórir Steinar.
Dag einn var sérfræðingur í tímaskipulagningu að tala fyrir framan hóp viðskiptafræðinema. Til að koma meiningu sinni almennilega til skila, þá notaði hann sýnikennslu sem nemendurnir gleyma aldrei.
Þar sem hann stóð fyrir framan þennan hóp af metnaðarfullu fólki, þá sagði hann:?Jæja, þá skulum við hafa próf.?
Hann tók upp 5 lítra krukku með stóru víðu opi, og setti hana á borðið fyrir framan sig.  Svo tók hann um það bil 10 hnefastóra steina og varfærnislega kom þeim fyrir í krukkunni, einn af einum.
Þegar krukkan var full, og ekki hægt að koma fleiri steinum í hana, þá spurði hann:
?Er krukkan full??
Allir í bekknum svöruðu: ?Já.?
?Jæja?? sagði hann.  Hann teygði sig undir borðið og tók upp fötu með möl.  Því næst sturtaði hann smá möl í krukkuna og hristi hana um leið sem orsakaði það að mölin komst niður í holrúmin á milli stóru steinanna.  Svo spurði hann hópinn aftur:
?Er krukkan full??
Í þetta sinn grunaði nemana hvað hann var að fara. ?Sennilega ekki,? svaraði einn þeirra.
?Gott!?  svaraði sérfræðingurinn.  Hann teygði sig undir borðið og tók upp fötu af sandi.  Hann hellti úr henni í krukkuna og sandurinn rann í öll holrýmin sem eftir voru milli malarinnar og stóru steinanna.
Enn spurði hann: ?Er krukkan full??
?NEI!? æptu nemendurnir.
Aftur svaraði hann: ?Gott!?
Hann tók því næst könnu af vatni og hellti í krukkuna þar til hún var alveg full. Svo leit hann á bekkinn og spurði: ?Hver er tilgangur þessarrar sýnikennslu??
Einn uppveðraður nemandinn rétti upp höndina og sagði, ?Tilgangurinn er að sýna, að það er sama hversu full dagskráin hjá þér er, ef þú virkilega reynir, þá geturðu alltaf bætt fleiri hlutum við!?
?Nei.? Svaraði sérfræðingurinn.  ?Það er ekki það sem þetta snýst um. Sannleikurinn sem þetta dæmi kennir okkur er þessi:  Ef þú setur ekki stóru steinana í fyrst, þá kemurðu þeim aldrei fyrir.?
--
Hverjir eru ?stóru steinarnir? í þínu lífi?  Börnin þín? Fólkið sem þú elskar? Menntunin þín? Draumarnir þínir?  Verðugt málefni? Að kenna eða leiðbeina öðrum? Gera það sem þér þykir skemmtilegt? Tími fyrir sjálfa(n) þig? Heilsa þín? Maki þinn.
Mundu að setja STÓRU STEINANA í fyrst, eða þú munt aldrei koma þeim fyrir.  Ef þú veltir þér upp úr litlu hlutunum (mölin, sandurinn, vatnið) þá fyllirðu líf þitt með litlum hlutum sem skipta í raun ekki máli og þú munt aldrei hafa þann tíma sem þú þarft til að eyða í stóru mikilvægu hlutina í þínu lífi (stóru steinarnir).
Semsagt, í kvöld, eða í fyrramálið, þegar þú hugsar um þessa stuttu sögu, spurðu þig þá að þessarri spurningu:
?Hverjir eru ?stóru steinarnir? í mínu lífi??
Settu þá svo fyrst í krukkuna.


Dag einn í aldingarðinum Eden heyrðist Eva kalla til Guðs:  "Drottinn minn, það er smá vandamál!"
"Hvað er að Eva mín?" "Drottinn minn, ég veit að þú skapaðir mig og hefur útvegað mér þennan fallega garð og öll þessi yndislegu dýr, og þennan frábærlega fyndna snák, en ég er bara ekki hamingjusöm". "Af hverju ertu ekki hamingjusöm Eva?" "Drottinn minn, ég er einmana.  Og ég er orðin hundleið á eplum". "Jæja, Eva mín, fyrst svo er þá er ég með lausn á málinu.  Ég skal búa til mann handa þér." "Hvað er "mann" Drottinn minn?" "Það er "maður" Eva mín.  Hann verður gölluð lífvera, með marga slæma eiginleika.  Hann mun ljúga, svindla, hann verður hégómlegur, og mun á allan hátt verða þér til vandræða.  En.... hann verður stærri, fljótari og sterkari en þú og honum mun þykja gaman að veiða og drepa fyrir þig.  Hann mun líta mjög kjánalega út þegar hann er æstur, en fyrst þú ert að kvarta, þá mun ég skapa hann þannig að hann muni fullnægja ... tja.... já... þínum líkamlegu þörfum.  Hann verður húmorslaus og mun elska að taka þátt í barnalegum hlutum eins og að slást og sparka bolta til og frá. Hann verður ekki mjög greindur svo hann mun þurfa leiðsögn þína til að hugsa skýrt." "Hljómar vel" sagði Eva og lyfti annarri augabrúninni háðslega. "Hverju þarf ég svo að fórna?" "Tja, já, jæja, þú getur fengið hann með einu skilyrði". "Og hvaða skilyrði er það Drottinn?" "Eins og ég sagði, hann verður stoltur, hrokafullur og sjálfsánægður.... Svo þú verður að leyfa honum að halda að ég hafi skapað hann fyrst....Þetta verður leyndarmálið okkar...bara tveggja kvenna á milli!"

AMEN.


"FRUMEFNIÐ KARL"
Borist hefur tilkynning um að nýtt frumefni hafi fundist, "FRUMEFNIÐ KARL".

Frumefnið finnst: í sófum, á kaffihúsum, börum, bjórkrám, á öðrum endanum á vindli eða veiðistöng.  SJALDAN þó nálægt börnum.
Eðlisþyngd:  70 -140 kg. og er breiðast um miðjuna.
Eðliseiginleikar :  Þenst út í nálægð peninga og valds, skreppur saman í grennd við ryksugur og gólfskrúbba, fuðrar upp við strokur og hól, slokknar á við umræður um jafnrétti og kvennfrelsi. Þó ósjálfbjarga án kvenna.
Efniseiginleikar : Dregst að fokdýrum dauðum hlutum, tækjum og tólum.
Ofsafengin viðbrögð við skorti á ummönnun og eftirtekt .e.ósjálfbjarga án kvenna.
Notkun :  Nauðsynlegt (ennþá) til æxlunar en ekki til teljandi gagns að öðru leyti. (Hristist við notkun).
VARÚÐ:  Getur eitrað líf kvenna ef þær eru ekki vel á verði.