|
Nú trúir maður á Guð !!!!!!!!!
Sköpunarverkið fullkomnað
Lykla Pétur og Guð eru að leggja síðustu hönd á konuna áður en að þeir
setja hana á jörðina.
"Taugaendarnir," segir Pétur. "Hvað eigum
við að setja marga í lófa hennar?"
"Hvað settum við marga í Adam?" spyr Guð.
"Tvo hundruð, ó þú mikli Guð," svarar Pétur.
"Þá gerum við það sama fyrir hana," segir Guð.
"Hversu marga taugaenda ættum við að setja í kynfæri hennar?"
spyr Pétur aftur.
"Hvað settum við marga í Adam?" spyr Guð.
"Fjögur hundruð og tuttugu, ó þú mikli Guð" svarar Pétur.
"Auðvitað, við settum svona marga til að Adam gæti fjölgað
mannkyninu og fundist það gott í leiðinni, var það ekki? Gerum það sama
fyrir konuna. " segir Guð.
"Já, ó mikli Guð," segir Pétur.
"Nei bíddu," segir Guð. "Skítt með það, láttu hana hafa tíu
þúsund. Ég vil að hún æpi nafnið mitt!"
Kúabóndinn
Einar bóndi er nýbúinn að kaupa sjálfvirka mjaltavél sem kýrnar ganga sjálfar
í og láta vélina mjólka sig. Fyrir nokkrum dögum komu menn til Einars og
settu nýja mjaltavélina saman, tengdu hana og kenndu honum að nota tækið.
Þegar þeir voru farnir ákvað Einar að framkvæma smá gæðapróf áður en
kúnum er hleypt í nýju vélina. Hann setti tólið sitt í einn stútinn og
kveikti á vélinni. Viti menn, sjálfvirka mjaltavélin reyndist hreinn unaður
og hún er mun betri en eiginkonan. Þegar Einar var búinn að fá nóg og ætlaði
að hætta uppgötvaði hann sér til mikils hryllings að hann var fastur við
mjaltavélina og það var alveg sama hvað hann reyndi, vélin vildi ekki
sleppa. Að lokum hugkvæmdist honum að taka fram gemsann og hringja í þjónustufulltrúann
hjá seljanda mjaltavélarinnar. Þar fékk hann þær upplýsingar að mjaltavélin
sleppi spenanum um leið og sex lítrar mjólkur hafi runnið úr kúnni.
Kæri sonur.
Ég skrifa þetta bréf mjög hægt vegna þess að ég veit að þú lest ekki
hratt. Við búum ekki lengur þar sem við bjuggum þegar þú fluttir að
heiman. Pabbi þinn las nefnilega í blaðunu að flest slys gerast innan 30 kólómetra
frá heimilinu, svo við fluttum. ég get ekki sent þér heimilisfangið okkar
vegna þess að fjölskyldan, sem bjó hér síðast, tók
húsnúmerið með sér svo að þau þyrftu ekki að breyta
heimilisfanginu. Húsinu fylgdi þvottavél. Fyrsta daginn þvoði ég fjórar
skyrtur, togaði í handfangið og síðan hef ég ekki séð þær. Það
ringdi tvisvar í síðustu viku fyrst í þrjá daga og síðan í fjóra.
Mannstu eftir frakkanum sem þú baðst mig um að senda þér. Hann er kominn
í póst en Stína frænka sagði að það yrði svolítið dýrt að senda
hann svo að við klipptum allar þungu tölurnar af frakkanum og settum þær
í vasann. Systir þín fæddi barn í morgun. Ég veit ekki enn hvort hún átti
svo ég veit ekki hvort þú ert frændi eða frænka. Jæja það eru ekki
fleiri fréttir í bili.
Ástarkveðja mamma.
ps. Ég ætlaði að senda smá aur en var búin að loka umslaginu.
Jónas og Magga voru nýgift og nú ætlaði Jónas að
setja nokkrar heimilisreglur:
"Ég kem heim þegar ég vil, ef mig langar til þess,
á hvaða tíma sem er og án þess
að fá eitthvert nöldur frá þér. Ég geri ráð fyrir að fá frábæran
mat á borðið á hverju kvöldi, nema ég láti þig vita annað. Ég fer í
lax, rjúpu og fyllirí með gömlu félögunum þegar ég vil og þú mátt
ekki rexa neitt út af því. Þetta eru mínar reglur! Hefur þú etthvað við
þær að athuga?"
"Nei, nei," sagði Magga. "Svo framarlega sem þú gerir þér
grein fyrir að hér verður stundað kynlíf á hverju kvöldi klukkan hálf níu
- hvort sem þú ert heima eða ekki."
Og svo var það ljóskan
sem fékk þennan gífurlega áhuga á dorgveiði.
Hún varð sér út um allan búnað til
þess arna, veiðigræjur, borsveif, stól
og hvað ekki.
Nú, svo var að skella sér í veiði.
Hún kom sér fyrir úti á ísnum, settist
á stólinn og fór að bora.
Þá gall við rödd sem sagði: "Hér
er enginn fiskur." Henni varð bylt við og leit
í kringum sig en sá engan. Hún færði sig um set.
Á nýjum stað kom hún sér fyrir
settist á stólinn og fór að bora. Og aftur
gall við röddin: " Hér er enginn
fiskur."
Aftur tók hún saman græjurnar og færði
sig um set. Og sem hún byrjar
aftur að bora gellur við röddin:
"Hér er enginn fiskur."
Hún lítur í kringum sig, upp í loftið
og allt í kring en sér engan.
Hún spyr með titrandi röddu.
"Er..., er þetta Guð?"
"NEI! Þetta er umsjónamaður
skautahallarinnar og hér er engan fisk að hafa..."
Framtíðarsýn !
Dag einn var Pési að kvarta við vin sinn, "mér er alveg hrikalega
illt í olnboganum. Ég held að ég verði að fara til læknis".
Félaginn sagði, "ekki gera það, það er komin alveg ótrúleg vél niðrí
apótek sem getur sagt þér nákvæmlega hvað það er sem hrjáir þig. Það
er mikið fljótlegra og ódýrara en að fara til læknis. Þú setur
bara þvagsýni í vélina og hún segir þér hvað er að þér og hvað
þú átt að gera í því, og það kostar bara 500 kall".
Pési ákvað að hann hefði engu að tapa og fór með þvagsýni í apótekið.
Þegar hann var kominn þangað hellti hann sýninu í vélina og borgaði
500 kallinn. Vélin fór að framkalla skrítin hljóð og fullt af ljósum
blikkuðu.
Eftir smá stund kom prentaður miði úr vélinni sem á stóð: Þú ert með
tennisolnboga. Láttu hendina liggja í heitu vatni, vefðu heitum bökstrum um
olnbogann og forðastu erfiðis vinnu, þá ættir þú að vera orðinn betri
eftir tvær vikur.
Seinna um kvöldið var hann enn að hugsa um hversu mögnuð vélin væri og
datt allt í einu í hug hvort ekki væri hægt að plata hana, eftir smá
umhugsun ákvað hann að reyna. Hann blandaði saman krana vatni, hunda
skít úr hundinum sínum og þvagsýnum úr bæði konu sinni og dóttur,
og til að toppa þetta runkaði hann sér í blönduna. Daginn eftir fór
hann í apótekið, hellti blöndunni í vélina og borgaði 500 kallinn.
Véilin byrjaði strax að blikka ljósum og framleiða hávaða og prentaði
síðan út eftir farandi greiningu:
Lagnirnar hjá þér eru ryðgaðar, hringdu á pípara. Hundurinn þinn
er með orma, farðu með hann til dýralæknis. Dóttir þín notar kókaín,
sendu hana í meðferð. Konan þín er ólétt, þú átt það ekki, fáðu
þér lögfræðing. Hættu að runka þér annars batnar þér aldrei í
olnboganum!
Jón bóndi í Útnára hafði aldrei
verið giftur, en var í gær að fá til sín eina Thælenska úr póstlistanum
"Einn með Öllu". Hann veit ekki alveg hvernig
hann á að umgangast dömuna og ákveður að hringja í póstlistann, en fyrir
slysni ruglast hann á símanúmerum og fær samband við tölvubúðina
"Ein með Öllu".
Heyrum nú hvað þeim fór á milli.
Sölumaður (S)
Jón bóndi (J)
RING RING
S "Ein með öllu" góðan daginn,
J "Já, góðan daginn. Ég fékk hjá ykkkur "Eina" núna um
daginn og ég er í helvítis brasi með hana. Ég kann bara ekkert á hana. Ég
held að hún sé tælensk....."
S "Neiii.... Það getur ekki verið. Ef þú hefur fengið hana nýlega
þá hlýtur hún að vera frá Kóreu. Hvað heitir hún annars?"
J "Hún heitir Híun Dæ, held ég. Hún var allavega með merki framan á
sér sem á stóð Híun Dæ."
S "Já, Hyundai, það getur passað. En hvaða vandræði eru með
hana?"
J "Ég er búin að vera að berjast við að reyna að koma henni af stað
í allan dag en ekkert gengið."
S "Ertu búinn að taka hana úr umbúðunum?"
J "Já, já, hún stendur hérna alveg "nettó "fyrir framan mig
og ég bara veit ekkert hvað ég á að gera næst."
S "Mér finnst nú alltaf best að hafa þær uppi á borði þegar ég
nota þær annars þreytist maður svo fljótt í bakinu."
J "Jááá þú segir nokkuð. Ég skelli henni þá upp á borð!"
S "Gott, svo sestu framan við hana og athugar hvort hún sé orðin
heit."
J "Ég er búin að þreifa aðeins á henni og hún er bara sæmilega volg
víðast hvar..."
S "Hvernig týpa er þetta annars? 486?"
J "Tja- 6 og ekki 6...Það sem ég var með í huga var bara svona
venjulegt sex allaveganna til að byrja með. Það er aldrei að vita hvað maður
gerir svona seinna meir..."
J "Þú segir að hún sé orðin volg, já Þá skaltu grípa um músina,
og færa hana rólega þangað til að "bendillinn" er kominn þangað
sem þú vilt."
J "Grípa um músina? Er það nú ekki svolítið ruddalegt svona rétt á
meðan við erum að kynnast?"
S "Nei, nei. Það er alveg nauðsynlegt að vera liðugur á músina þannig
að þú fáir það sem þú vilt."
J "Jæja, það skal þá þannig vera, en heyrðu, það er allt fullt af
hárum á músinni !"
S "Klikkaðu undir hana og blástu svo á hana. Það ætti að duga.
Hvernig er annars minnið í henni?"
J "Tja, það hefur nú lítið reynt á það ennþá hún kom nú bara í
gær"
S "Þú ert náttúrulega með harðan? Er það ekki?"
J "Harðan. Jú, og ég er búinn að vera með hann lengi. Loksins er ég
búinn að fá eitthvað til að setja hann í! !"
S "Hvað er hann stór?"
J "Stór??? Hann er svona í góðu meðallagi!!!!"
S "O.K. gott, þeim mun stærri því meiru getur þú hlaðið á hann.
Segðu mér annað, hvernig drif er á henni?"
J "Hvað meinar þú með drif??????"
S "Sérðu ekki rifu framan á henni? Það er drifið..."
J "Já, ég sé smá rifu en ég er vanur að kalla hana allt öðrum nöfnum."
S "Já, rifan er til þess að bæta í hana einu og öðru. Þú stingur
bara floppinum inn og svo er það bara "run" og
"enter"."
J "Run? Þarf það???? Ég er nú ekki með það stórt herbergi að ég
geti verið að hlaupa mikið en ENTER það get ég!!!"
S "Svo veistu að þú getur tekið pásu hvenær sem er því að sá harði
geymir allt saman eins lengi og þú vilt, nema náttúrulega að hún krassi á
þig!"
J "Krassi á mig? Eiga þær það til líka? Ég get nú bara ekki hugsað
þá hugsun til enda."
S "Ef hún krassar þá getur sá harði skemmst."
J "Það hlýtur að vera ósköp sárt!!!!"
S "Enn hvað ætlar þú að gera við hana? Í hvað ætlar þú að nota
hana?"
J "Ég var nú aðallega að hugsa um að leika mér að henni meðan ég
er að kynnast henni. Svo fer ég að nota hana í eitt og annað
nytsamlegt."
S "Það er upplagt að láta hana sjá um bókhaldið. Það er um að
gera að nýta möguleika hennar á öllum sviðum eins og maður getur."
J "Segðu mér eitt, er ekki óhætt að treysta þeim?"
S "Jú, jú, þær eru nokkuð öruggar."
J "Hvað finnst þér um hana? Heldur þú að hún sé ekki bara nokkuð góð?
Hún Híun Dæ???"
S "Jú, ég er búinn að skoða þær margar, og þessi er örugglega þrælgóð.
Þú þarft náttúruleg að vita að þær úreldast fljótt. Þú kemur bara
með hana niðureftir og uppfærir í eina nýja. Við tökum þá gömlu uppí!!"
J "Það er ekki að spyrja að því. Toppþjónusta sem þið veitið....."
S "Já, við leggjum okkur fram við að veita kúnnanum góða þjónustu.
Margir skipta á svona tveggja ára fresti..."
J "Heyrðu, ég þakka þér bara kærlega fyrir hjálpina. Nú er ég tilbúinn
til þess að hjóla í hana...."
S "Gott hjá þér, og ef þú lendir í frekari vandræðum þá skal ég
koma á staðinn og hjálpa þér."
|