Gömul kona gengur inn í banka með fullan poka af seðlum og ætlar hún aðleggja peningana inn.  Hún heimtar að fá bankastjórann til að afgreiða sig.
Það er venjulega ekki hægt í þessum banka en þar sem hún er með svo mikla peninga ákveður afgreiðslufólkið að ná í bankastjórann
(viðskiptavinurinn hefur alltaf rétt fyrir sér)... Bankastjórinn spyr gömlu konuna hve mikið hún ætli að leggja inn. "14 milljónir króna" segir gamla konan og skellir pokanum á borð stjórans. Hann er auðvitað forvitinn og ákveður að spyrja um hvar hún hefði fengið alla þessa peninga??? gamla konan svarar: ég vinn mörg veðmál. "Veðmál, já... hvernig veðmál ?" spyr bankastjórinn konuna. "bara einsog, ég veðja við þig 2 milljónum að þú ert með þríköntuð eistu!!!" bankastjórinn hlær og segir að þetta sé heimskulegt veðmál. Konan skorar á hann og bankastjórinn tekur veðmálinu... "En þar sem það eru
mjög miklir peningar í húfi, er þá ekki í lagi að ég taki lögfræðinginn minn með sem vitni á morgun kl. 10 ?"  Bankastjórinn hafði ekkert á móti því og var viss um að hann mundi vinna...
Þetta sama kvöld var bankastjórinn orðinn mjög taugaóstyrkur og eyddi miklum tíma fyrir framan spegilin heima hjá sér, skoðandi eistun með því að snúa þeim í allar áttir. hann hætti ekki fyrr en hann var viss um að hann mundi vinna veðmálið...
Næsta morgun, nákvæmlega klukkan 10, birtist gamla konan og lögfræðingurinn hennar fyrir utan bankastjóraskrifstofuna. Hún kynnti bankastjóran og lögfræðinginn en endurtók síðan veðmálið "ég veðja 2 milljónum á að bankastjórinn sé með þríköntuð eistu!" Bankastjórinn játaði veðmálinu og gamla konan sagði honum að fara úr buxunum. Hann gerði það og gamla konan pírði augun vel og lengi.. hún bað síðan um að mega koma við þau til að finna hvernig þau væru í laginu. "ok, 2 milljónir eru mikið af peningum svo ég giska að þú verðir að gera það bara svo við séum örugg!!!"
Nákvæmlega þá, tók bankastjórinn eftir hvar lögfræðingurinn var að lemja hausnum í vegginn, alveg hljóðlaust. Bankastjórinn spurði gömlu konuna "hvað í andskotanum er að lögfræðingnum þínum???"
Hún svaraði "ekkert, nema það að ég veðjaði við hann um 8 milljónir að nákvæmlega klukkan 10 væri ég með eistu bankastjórans í höndunum!!!"


Eldri maður giftist mun yngri konu og voru þau mjög ástfangin. Gallinn var þó sá að hversu mikið sem þau reyndu gat maðurinn ekki veitt spúsu sinni fullnægingu í rúminu. Ákváðu þau því að leita til læknis. Sá hafði ráð undir rifi hverju og eftir að hafa hlustað á söguna ráðlagði hann þeim að ráða til sín ungan og glæsilegan mann. "Á meðan þið njótið ásta skuluð þið fá hann til þess að veifa handklæði yfir ykkur. Ímyndunarafl konunnar ætti þannig að fara á fullt og hún ætti að fá sterka fullnægingu." Hjónin ákváðu
að reyna þetta og réðu til sín fjallmyndarlegan og vöðvastæltan mann til að veifa handklæðinu. Þrátt fyrir það gekk henni ekkert betur að fá fullnægingu. Þau ákváðu því að tala aftur við lækninn. Hann ráðlagði þeim að skipta um hlutverk. "Nú skuluð þið fá unga manninn a til að nóta ástar með konunni á meðan þú veifar handklæðinu," sagði hann við gamla manninn.
Aftur ákváðu þau að fara að ráðum læknisins og fór ungi maðurinn í rúmið með konunni á meðan sá gamli sá um handklæðið. Ekki leið á löngu þar til konan fékk gríðarlegar fullnægingar, aftur og aftur svo herbergið lék á reiðiskjálfi. Þegar þau höfðu lokið sér af leit sá gamli brosandi á unga manninn. "Þarna sérðu," sagði hann sigri hrósandi. "Það er SVONA sem maður á að veifa handklæði."


Maður einn fær skelfilegan hausverk í vinnunni, ákveður að taka sér frí eftir hádegi og fer heim.
Þegar hann kemur heim, fer hann inn í eldhús, finnur magnyl og tekur tvær.
Svo heyrir hann tónlist, fer upp á loft og kemur að konu sinni með dvergi.
Hann öskrar á hana: "Hundrað sinnum hef ég fyrirgefið þér þetta endalausa framhjáhald, þú lofaðir fyrir viku að hætta og svo kem ég að þér svona!"
Konan lítur á hann og segir: "Vertu ekki að æsa þig elskan, sérðu ekki að ég er að reyna að minnka við mig?"
 


Tveir gamlir skólafélagar hittust í Kringlunni. Þeir voru greinilega misefnaðir en áttu það sameginlegt að vera báðir að leita að gjöf handa  konunni sinni. Sá efnameiri er búinn að kaupa handa sinni og segir hinum  að hann hafi keypt handa henni demantshring og Benz.
"Vegna þess að ef  hún fílar ekki demantshringinn þá getur hún bara skutlast á Benzinum og  skilað hringnum".
- Sá efnaminni þarf nú að fara og kaupa handa sinni og  þeir ákveða að hittast í kaffi eftir klukkutíma. Þegar þeir hittast  aftur spyr sá efnameiri groddalega hvað hann hafi nú keypt. Hinn  svarar: "inniskó og vaselín".
Það kemur skrýtinn svipur á ríka kallinn og hann spyr hvers vegna.
"Sko, ef hún fílar ekki inniskóna þá getur hún bara troðið þeim upp í rassgatið á sér"
 


NONNI LITLI

 Nonni litli sá bílinn hans pabba síns aka framhjá leikvellinum og inn í skógarjaðrið. Þar sem Nonni er mjög forvitinn drengur, elti hann bílinn og sá pabba og Siggu frænku í ástríðufullum faðmlögum. Nonna litla fannst þetta mjög spennandi og fylgdist með í nokkra stund. Hann gat varla hamið sjálfan sig eftir að heim var komið og byrjaði, mjög æstur, að segja mömmu sinni frá. MAMMAMAMMA, ÉGVARÚTIÁLEIKVELLIÞEGARPABBIOG?

Mamma bað hann um að róa sig aðeins. Hún vildi endilega heyra söguna hjá honum, en hann yrði að tala rólega. Svo Nonni byrjar aftur: Ég var úti á leikvelli og ég sá pabba fara með Siggu frænku í bílnum inn í skóginn. Ég elti þau og hann var að kyssa Siggu frænku, svo hjálpaði hann henni að fara úr pilsinu, svo hjálpaði Sigga pabba að fara úr buxunum, svo lagði Sigga frænka sætin aftur og lagðist, svo lagðist pabbi?

Á þessari stundu, stoppaði mamma Nonna hann af og sagði: Nonni minn, þetta er mjög svo áhugaverð saga, hvernig væri að þú geymdir hana þangað til í kvöldmatnum. Mig langar svo til að sjá svipinn á honum pabba þínum þegar þú segir hana í kvöld.

Við kvöldmatarborðið, biður mamma Nonna litla um að segja þeim söguna.
Nonni  byrjar að segja frá, lýsir þessu öllu saman mjög vandlega, þegar hann elti bílinn inn í skóg, þegar þau afklæddust, lögðust niður og, síðast en ekki síst, ? þegar pabbi og Sigga frænka gerðu alveg eins og mamma og Halli frændi voru vön að gera þegar pabbi var á sjónum

(Stundum væri betra að hlusta á alla söguna, áður en maður grípur fram í)


Drekkur þú jafn mikið vatn og þú ættir að gera á hverjum degi?

     KÓK !!

     - Í mörgum bandarískum fylkjum er vegalögreglan með10 lítra af kóki í
     bílunum hjá sér til að þrífa blóð af vegum eftir umferðarslys.

     - Þú getur sett T-Bone steik í skál af kóki og hún verður horfin eftir
     2 daga.

     - Til að hreinsa klósettið: Helltu einni dós af kók ofan í klósetið,
     bíddu í eina klukkustund og sturtaðu svo niður. Sýran í kókinu leysir
     upp bletti.

     - Til að fjarlægja ryðbletti af krómstuðurum: Dýfðu krumpuðum álpappír
     í kók og nuddaðu stuðarann.

     - Til að hreinsa rafgeyminn í bílnum: Helltu einni dós af kók yfir
     rafgeymatengslin.

     - Til að losa ryðgaðan bolta (skrúfu). Rennbleyttu tusku með kóki og
     haltu henni að boltanum í nokkrar mínútur.

     - Til að fjarlægja fitubletti úr fatnaði: Helltu einni dós af kók í
     þvottavélina bættu við þvottaefni og þvoðu eins og venjulega. Kókið
     leysir upp fitublettina.

     - Framrúðan á bílnum þínum hreinsast líka vel með kóki.

     - Virka efnið í kók er phosphoric acid.

     - Ph í kók er 2.8. Það getur leyst upp nögl á ca fjórum dögum.

     - Til að flytja Coca-Cola sýrópið (fullan styrk) þurfa
     vöruflutningabifreiðar að hafa á sér viðvörunarskilti sem einungis eru
     notuð á bíla sem flytja MJÖG ÆTANDI EFNUM.

     - Dreifingaraðilar Coca-Cola hafa notað gosdrykkinn í um það bil 20 ár
     til að hreinsa vélarnar í trukkunum hjá sér.

Langar þér enn í hressandi dós af Coca-Cola?


Konan er nakin að skúra í baðherberginu þegar hún verður því óláni að detta....og  það í splitt...það er sama hvernig hún reynir, hún getur sig hvergi hreyft, og öskrar á eiginmanninn sem kemur hlaupandi.....hann juðast og tuðast, en það er sama hvernig hann lætur, hún er sem límd við gólfið loks stynur hann upp ég verð bara að ná í hann Guðmund hérna á móti...og það verður úr !!


En það er sama sagan...það er ekki nokkur leið að hreyfa hana........loks stynur Guðmundur upp-ég verð bara að hlaupa yfir og sækja sleggju og meitil....við verðum bara að brjóta flísarnar !! Ok. segir eiginmaðurinn...ég fytla þá við brjóstin á henni á meðan !! Af hverju???

Spyr Guðmundur agndofa....Ja, ég ætla að reyna að bleyta aðeins upp í henni og renna henni fram í eldhús.....flísarnar þar eru ódýrari............


Uglan
(eftir stúlku í fimmta bekk)
 

Fuglinn sem ég ætla að skrifa um er ugla. Ég veit ekki mikið um uglur þannig að ég ætla skrifa um leðurblöku. Kýrin er spendýr. Hún hefur sex hliðar þ.e. hægri hlið, vinstri hlið efri hlið og neðri hlið. Að aftan hefur hún halann sem burstinn hangir í. Með burstanum fælir hún flugurnar í burtu svo þær komist ekki í mjólkina.

Höfuðið er til þess að hornin geti vaxið og að munnurinn geti verið einhversstaðar. Hornin eru til þess að stanga með en munnurinn til að borða með. Undir kúnni hangir mjólkin. Mjólkin kemur bara og kemur, allveg endalaust. Hvernig kúin gerir þetta hef ég ekki ennþá komist að en húngetur búið til meira og meira.

Kýrnar hafa mjög næmt lyktarskyn og lyktin af þeim finnst mjög langt langt í burtu. Það er skýringin á ferska sveitaloftinu. Karlmannskýr eru kölluð naut. Þau eru ekki spendýr.

Kýrnar borða ekki mikið en það sem þær borða, borða þær tvisvar svo þær fái nóg.Þegar þær eru svangar þá baula þær en þegar þær segja ekki neitt þá er það vegna þess að þær eru pakksaddar.
Þórunn Sóley

 

Gamall kúreki í fullum skrúða kom inn á krána sína og fór beint á barinn og pantaði sér viský.  Þar sem hann situr og dreypir á drykknum sínum kemur ung og glæsileg kona og pantar sér drykk og spyr gamla kúrekann hvort hann sé alvöru kúreki?
Hann segir, já það er ég og það hef ég verið alla mína ævi. Ég hef verið alla mína tíð á búgarðinum mínum, rekið kúahjarðir,verið á hestbaki, reist girðingar, já ég er alvöru kúreki segir hann.
Eftir smá stund segir kúrekinn við dömuna: Hvað ert þú?
Ég hef aldrei verið á búgarði, svo ég er ekki kúreki sagði unga konan, en ég er lesbía. Ég eyði öllum mínum tíma í að hugsa um kvenmenn, alveg frá því ég vakna á morgnana, þegar ég fer í sturtu, þegar ég borða, þegar ég horfi á sjónvarpið og þegar ég er komin í rúmið á kvöldin, hvað sem ég geri þá hugsa ég stöðugt um konur.
Stuttu seinna fer unga konan og kúrekinn pantar sér annan drykk.
Nokkru síðar kemur par og sest við barinn og maðurinn spyr gamla kúrekann hvort hann sé virkilega alvöru kúreki?
Það hef ég alltaf haldið,þangað til rétt áðan að ég komst að því að ég er LESBÍA....

 

 

Aðlögunarhæfni kvenna er aðdáunarverð.....!

Hjón  nokkur eru á mjög fínu veitingahúsi að borða þegar allt í einu birtist gullfalleg stúlka við borðið þeirra og gefur manninum svakalegan koss, beint
á munninn, segist ætla að hitta hann seinna og hverfur jafn skyndilega og hún  birtist.

Konan hans starir á hann og segir: "Hver í veröldinni var  þetta??"
"Ó, þessi ? Þetta var viðhaldið mitt, " segir hann rólegur. "Jæja já !!
Þetta fyllir mælinn. Ég heimta skilnað." "Ég get skilið það," svara eiginmaðurinn, "en mundu eitt, ef við skiljum þá þýðir það að þú ferð ekki fleiri verslunarferðir til Parísar, 
ekki fleiri vetrarferðir til Barbados, Ekki fleiri sumarferðir til  Toscana og það verða ekki lengur BMW og Porsche í bílskúrnum þínum. Þú missir klúbbskírteinið í skútuklúbbnum og þú þarft ekki mæta meira í golf, en ákvörðunin er þín."

Einmitt þá kemur inn sameiginlegur vinur þeirra inn á veitinghúsið
Með rosa gellu uppá arminn. "Hver er þessi kona með Svenna?" spyr konan. "Þetta er viðhaldið hans, "  svarar eiginmaðurinn. Þá segir konan: "Okkar er sætari!"


Megrun og dauði.
 

Japanir borða mjög litla fitu og fá mun færri hjartaáföll en Bandaríkjamenn og Englendingar.
Frakkar borða mikla fitu og fá mun færri hjartaáföll en Bandaríkjamenn og Englendingar.
Japanir drekka mjög lítið af rauðvíni og fá mun færri hjartaáföll en Bandaríkjamenn og Englendingar.
Ítalir drekka mjög mikið af rauðvíni og fá mun færri hjartaáföll en Bandaríkjamenn og Englendingar.
Þjóðverjar þanba bjór og háma í sig pylsum og fitu og þeir fá mun færri hjartaáföll en Bandaríkjamenn og Englendingar.
Niðurstaða:
Borðaðu og drekktu allt sem þig langar í. Forðastu að tala ensku.


Hennar hlið á gærkvöldinu

Hann var í furðulegu skapi í gærkvöldi. Við höfðum ákveðið að hittast á kaffihúsi yfir einum drykk eða svo.
Ég hélt að það væri mér að kenna, þar sem ég var heldur sein vegna þess að ég var að versla með stelpunum og gleymdi mér aðeins.

Hann minntist samt ekkert á það.

Okkur gekk ekkert að ná saman, svo ég hélt að það yrði kannski þægilegra að vera einhverstaðar þar sem við gætum verið ein, svo við fórum á mjög rómantískt veitingahús.
En hann var ennþá í ferlega furðulegu skapi.
Ég reyndi að hressa hann og var farin að spá í hvort að þetta væri bara ég eða hvort eitthvað alvarlegt væri í gangi.
Ég spurði hann, en hann svaraði því neitandi. En ég var ekki viss.
Allavega, á leiðinni heim, þá sagði ég honum hvað ég elskaði hann heitt.
Hann setti hendina utan um mig, en svaraði mér ekki. Ég veit ekki hvað í fjandanum það á að þýða, því ég var nú kannski að vonast til að hann myndi segja að hann elskaði mig líka eða eitthvað.

Við komum loksins heim og ég var farin að spá í hvort hann ætlaði að dömpa mér. Ég reyndi að fá hann til að tala, en hann kveikti bara á sjónvarpin.
Þá gafst ég upp og fór í rúmið.
Mér til mikillar undrunnar þá kom hann upp til mín um það bil 20 mínútum seinna.
Við gerðum það, en hann virtist ennþá vera utan við sig.
Eftir sexið; dauðlangaði mig að hundskamma hann, en ég grét mig bara í svefn.
Ég veit ekki hvað ég á að gera lengur.
Ég meina, í alvöru.
Ég held að hann sé farinn að halda framhjá mér.

Hans hlið á gærkvöldinu:

Liverpool tapaði. Ég fékk þó að ríða.

Framhald af "Súrmjólk í hádeginu"


Ég er núna 10ára og leika mér ég fæ,
Lykil hef um hálsinn og stelst oft niðrí bæ.
Mamma er orðin kelling og kennarinn er snar,
Og pabbi eyðir helgunum við glas á Mímisbar.
 

Kókglas í hádeginu og hamborgara á kvöldin,
Mér er sagt að hanga yfir lexíunum hér,
Ég er núna ákveðinn að taka yfir völdin,
Svo pakkið hætti allavega að skifta sér af mér.

Ég er orðinn tvítugur og rosafengið töff,
Mér er sagt í rúminu að ég sé orðinn röff.
Pabbi er á Pollinum og mamma heldur við,
Þetta er orðið geðbilað og úrsérgengið lið.
 

Eitt glas í hádeginu og LSD á kvöldin,
Ég ætla mér að fríka, kerfið út í eitt.
Mikið er nú æðislegt að hafa sjálfur völdin,
Jafnvel þó þau fari fyrir ekki neit
Ég er orðin fertugur og forstjóri í klíku,
Í hjónabandið komin með, krakkaormahjörð.
Sit ég nú í nefndum með öllum þessu ríku,
Og rembist við að ráða, öllu hér á jörð.
 

Loks er ég sjötugur og sölnað er mitt skar,
Kominn inn á stofnun og dauðvona þar bíð.
Ekki man ég lengur neitt um hvað ég loksins var,
Né heldur er mér ljóst fyrir hvað ég núna líð.
 

Glyserin í hádeginu og stólpípa á kvöldin,
Mér er sagt að sofa meðan fréttatíminn er.
Ljóst er núna á öllu hér, að frá mér eru völdin,
Ég ræð því ekki einusinni hvaða dag ég fer.

Upplýsingar um höfund vantar.


BRÉF FRÁ HR. TIPPI
Ég, herra Tippi fer hér með fram á kauphækkun með meðfylgjandi  rökstuðningi:
* Starf mitt felst í miklu líkamlegu erfiði
* Ég vinn oft á miklu dýpi
* Ég tek áhættuna af því að reka hausinn inn fyrst í öllum verkum sem ég geng í
* Ég fæ ekki frí um helgar eða á hátíðisdögum
* Ég vinn við rakamettaðar aðstæður
* Ég fæ ekki borgað fyrir yfirvinnu
* Ég vinn á dimmum vinnustað með lélega loftræstingu
* Ég vinn við mjög hátt hitastig
* Það kemur fyrir að ég er krafinn um að vinna í bakgarðinum  sem mér  finnst ekki þrifalegasti staður í heimi
* Ég er iðulega krafinn um vinnuframlag þótt allir sjái að ég er verulega slappur
* Mér er skipað að fara ítrekaðar ferðir inn á þennan dimma og raka vinnustað þótt allir viti að það endar alltaf með því að ég kasta upp
* Starf mitt gerir mig berskjaldaðan gagnvart hættulegum sjúkdómum

Virðingarfyllst
Hr. Tippi


Ungur maður úr vesturbænum náði sér í þvílíkt flotta, ljóshærða útlenska gellu á djamminu um síðustu helgi. Hann býður henni heim og eftir smá spjall fara þau að ríða. Eftir nokkuð vel útilátnar serðingar, hallar hann sér aftur og spyr: "So...you finish?"

"No..." segir hún glottandi.

Ánægður með þetta, grípur hann utan um hana og þau endurtaka leikinn. Í þetta skiptið endist hann lengur og hún æpir alveg af fullnægingum, út og suður.

Aftur spyr hann gelluna "You finish?"

Hún kúrir sig upp að honum og svarar neitandi.

Þreyttur, en ákveðinn í að gefast ekki upp á undan henni, skríður hann aftur á bak og í þetta skipti beitir hann öllum sínum kröftum til að fullnægja henni og loks fá þau það samtímis, rífa lök og brjóta rúm.

Það er komin dögun og gaurinn, alveg búinn, lætur sig falla á bakið andvarpandi. Hann rétt nær að snúa höfðinu í áttina að henni og spyr: "You finish!?"

"No, I'm not," segir gellan, "I'm Swedish!"


Það kom eitthvað skrítið fyrir hana Gunnu eftir að hún varð ófrísk af sínu fysta barni. Þegar hún var komin átta mánuði á leið fór hana að dreyma að Guð kæmi til hennar á hverri nóttu og segði við hana að hún gengi með sveinbarn og að hún ætti að skíra hann Magnús. Þegar þetta hafði gengið svona í mánuð fékk hún léttasóttina og eignaðist stúlkubarn. Nú var úr vöndu að ráða.  Ekki gat hún látið stúlkuna heita Magnús? En í dag heitir hún GUÐ-LAUG


Þannig var að father O´Reilly hafði verið í skriftastólnum allengi og þurfti að bregða sér frá í smá stund. Hann bað því ungan aðstoðarprest að leysa sig af. Unga prestinum var brugðið..hafði aldrei gert þetta áður, en O'Reilly sagði honum að þetta væri ekkert mál og lét hann hafa bók þar sem í stóð hvað ætti að gefa fyrir hverja synd sem játuð var. Fyrst kom ung stúlka: faðir ég hef syndgað ég kyssti strák. -kysstir strák já..ungi presturinn fór í bókina, fletti upp á K og..já þarna stóð það..18 maríubænir. Síðan kom hugguleg ljóska og settist í stólinn: Fyrirgefðu mér faðir ég hef syndgað..ég gaf ókunnugum manni blow job og hafði endaþarmsmök við hann á eftir! -presturinn leitaði lengi í bókinni en fann ekkert um þetta og var alveg ráðalaus. Hann leit út um hurðina til að sjá hvort O'Reilly væri ekki að koma, en sá aðeins kórdreng nokkurn sem var að þrífa kirkjugólfið. -Pssst ..þú þarna kórdrengur., hvað gefur father O'Reilly fyrir blow job og endaþarmsmök? -Jaa... ég fæ venjulega bara prins póló og appelsín!


Hjón ein héldu til veiða í norðurhluta Minnesota. Eiginmanninum þótti best að fara út á vatn til veiða í birtingu, en eiginkonan kunni best við sig heima í tjaldi að lesa.
Morgun einn kemur maðurinn til baka eftir nokkurra klukkutíma veiði á vatninu og ákveður að leggja sig.
Konunni dettur þá í hug að fara á bátnum út á vatn, þótt hún væri óvön bátnum. Hún setur utanborðsmótorinn í gang, siglir út á vatn nokkurn spöl, leggst við stjóra og fer að lesa. Að nokkurri stund liðinni birtist  veiðivörðurinn á bát sínum, leggur við bát konunnar og segir: Góðan daginn frú, hvað ert þú að gera hér? -Lesa bók ( eins og það sé ekki augljóst - hugsar hún)
Þú ert hér á bannsvæði, hér má ekki veiða, segir vörðurinn
Ég er ekki að veiða, ég er bara að lesa, svarar konan
Já, en þú ert með allan búnað til veiða, mótmælir veiðivörðurinn, égnverð  fara með þig í land og skrifa þig upp.
Ef þú gerir það, svarar konar, verð ég að kæra þig fyrir kynferðislega áreitni.
En ég hef ekki einu sinni snert þig, segir vörðurinn afsakandi.
Það er alveg satt, en þú hefur allan búnað til þess!

Boðskapur: Deildu aldrei við konu sem les. Það mjög sennilegt að hún geti  líka hugsað!