|
Þrjár mýs voru á bar og voru að metast á um hver
þeirra væri mesti töffarinn.
Fyrsta músin skellti í sig einu vænu brennivínsskoti og sagði svo:
'Strákar, þessar músagildrur eru hlægilegar. Í hvert sinn sem ég kem að
einni slíkri, þá er nú lítið mál fyrir mig að kippa ostinum af.
Svo tek ég nokkrar léttar bekkpessuæfingar með gildrunni á eftir!'
Önnur músin skellti í sig tveimur og sagði svo:
'Músagildrur? Voðalega eru gamaldags. Þessar hátíðnihljóðbylgjur sem
mennirnir eru að nota á okkur mýsnar núna hljóma eins og ljúfir tónar í
eyrum mínum!'
Þriðja músin þambaði restina úr flöskunni, stóð upp og sagði: 'Jæja,
ég ætla heim að ríða kettinum!'
Kona fór til læknis og sagði honum að hún gæti ekki
fengið manninn sinn til að gera það með henni. Læknirinn lætur hana fá
pillur og sagði henni að gefa honum eina með kvöldmatnum ef hún vilji fá
kynlíf. Strax sama kvöld læðir hún einni pillu í matinn hans, og það er
eins og við manninn mælt, þau gerðu það um kvöldið og það var jafnvel
betra heldur en það hafði verið. Næsta kvöld ákvað hún að gefa honum
fjórar pillur, það köld var ótrúlegt, hún hafði aldrei upplifað annað
eins. Kvöldið eftir gaf hún honum átta pillur, hann stökk á hana strax
eftir matinn og hætti ekki fyrr en upp undir morgun. Hún var svo ánægð að
hún ákvað að gefa honum allar pillurnar, þannig að um kvöldið sturtaði
hún úr pilluglasinu út í súpuna hjá honum. Tveim dögum seinna kemur sonur
hennar til læknisins og segir, "læknir, hvað gerðir þú eiginlega við
pabba? Mamma er dáin, systir mín er ólétt, ég er að drepast í rassinum og
pabbi hleypur um allt hús kallandi "hérna kisi, kisi, kisi"
NÝJAR FRÉTTIR AF ÚTREIKNINGUM Á HITAEININGUM.
Ef þú borðar eitthvað
og enginn sér það, hefur það engar hitaeiningar.
* Ef þú drekkur "diet" gos með súkkulaði, núllast kaloríurnar
burt.
* Ef þú ert að borða með öðrum, teljast eingöngu þær hitaeiningar sem
þú borðar umfram hina.
* Matur sem er góður fyrir heilsuna telst ekki með s.s. ristað brauð með
kakó, brandý, rauðvín og ostakökur (allt þetta er notað til lækninga (á
lystarleysi)).
* Ef þú borðar kökur eða kex, skaltu brjóta eða skera þær, þá leka
hitaeiningarnar út.
* Það sem þú sleikir af eldhúsáhöldum og óhreinum diskum telst ekki með.
* Hitaeiningar eru í lit matarins, borðaðu grænt. Það er ekki þér að
kenna að marsipan er oft litað grænt og ath. brúnt er blandaður litur, ekki
náttúrulitur svo allt brúnt telst ekki með s.s. súkkulaði, nema það sé
hvítt.
* Það sem þú borðar í bíó telst hluti af skemmtanapakkanum og telst því
ekki með s.s. popp og kók ( í anda tilgangshyggjunnar).
* Ef þú umgengst feitt fólk virðist þú vera grannur, spurning hvort þú sért
ekki í röngum félagsskap ef þú ert "feitur".
* Ef þú fylgir þessum reglum hættir þú að vera leiðinlegur (vegna þess
að þú ert alltaf svangur ) og eignast fullt af vinum.
* Sendu þetta bréf til allra þeirra sem eru fúlir og leiðinlegir af
endalausum megrunarkúrum.
* Ef þú slítur keðjuna vaknar þú sem spikhrúga á morgun og verður lagður/lögð
inn á Reykjalund.
TOPP TÍU LISTINN
yfir það sem konur myndu gera ef þær væru með typpi í einn dag:
10. Fá stöðuhækkun.
9. Fá blowjob.
8. Skilja hvað er svona áríðandi við að fá úr honum.
7. Pissa standandi og halda uppi samræðum við aðra karlmenn á meðan.
6. Uppgötva af hverju bunan lendir stundum fram hjá.
5. Fara að sofa strax eftir kynlíf í stað þess að ræða sambandið.
4. Klóra sér í kynfærunum á almannafæri án þess að hafa áhyggjur af því
hvort einhver taki eftir því.
3. Hoppa upp og niður með standpínu til að komast að því hvort það sé
eins kjánalegt að upplifa það og að sjá það.
2. Gera sér grein fyrir vísindalegri skýringu þess að ljósbrot í
reglustiku gerir það að verkum að karlmanni sýnist hún mæla getnaðarlim
a.m.k. þremur sentímetrum lengri en hann í raun og veru er.
1. Loksins fatta hvernig það er að vera með heilann í klofinu.
TOPP TÍU LISTINN
yfir það sem karlar myndu gera ef þeir væru með píku í einn dag:
10. Byrgja sig upp af agúrkum og banönum.
9. Sitja á hækjum sér yfir spegli í a.m.k. klukkustund.
8. Athuga hvort þeir geti núna loksins farið í splitt.
7. Athuga hvort í raun og veru sé hægt að skjóta borðtenniskúlu 5 metra
vegalengd með henni.
6. Krossleggja lappir án þess að hagræða kynfærunum fyrst.
5. Lenda á séns á vínveitingastað fyrir hádegi.
4. Fá raðfullnægingu og heimta aðra fyrir svefninn.
3. Fara í rannsókn til kvensjúkdómalæknis og láta taka hana upp á
myndband.
2. Biðja til Guðs um að fá brjóst líka.
1. Loksins finna G-blettinn.
|