Sú hjálp sem ég hef sett upp hér hef ég hugsað fyrir þá sem vita lítið sem ekkert um tölvur og reini ég að hafa þetta sem allra einfaldast.

Eitt af því sem maður ætti fyrst að gera þegar maður ætlar að laga til í tölvuni er að hreinsa diskana með því sem windows bíður uppá

Ég myndi byrja á því að fara með "Disk Cleanup", svo "Error check" og "Defragment"

 

 

Byrjaðu á því að hægri smella á þann disk sem þú ætlar að láta fara yfir (er oftast drif C:) þar fer þú í Properties (sjá mynd að ofan)

 

 

Þegar þú ert búinn að íta á "Properties" þá ætti þetta að líta einhvað út á þessa leið, ýttu svo á "Disk Cleanup"

 

 

Það gæti tekið svoldin tíma fyrir tölvuna að fara yfir þetta ef þú hefur ekki gert þetta í langan tíma og einnig er það möguleiki að þú hún nái ekki að keira þetta, þar sem þú ert búinn að filla hana af of miklu rusli.

 

 

Þegar hún er búinn að fara yfir tölvuna þá kemur hún með tillögur um það sem þú ættir að eiða út og er nó fyrir þig að smella á "OK"

 

 

Næst er að fara með Error-checking á tölvuna og velur þú Check Now eins og er sýnt hér að ofan.

 

 

þá ætti að koma upp gluggi eins og þessi hér að ofan, og mæli ég með því að hakað sé við bæði og svo talvan endurræast eins og mælt er með.

Þá mun hún villu leita tölvuna um leið og hún ræsir sig aftur.

 

 

Næst myndi ég fara í að keira "Defragment Now" það er forrit sem raðar öllu upp á nýtt í tölvuni hjá þér og kemur reglu á skránnar sem eru í tölvuni hjá þér.

 

 

Þú velur þann disk sem þú ætlar að Defragmenta og velur "Defragment" ekki er mælt með því að það sé verið að vinna í tölvuni á meðan hún er að þessu og getur hún verið nokkr klukkutíma að þessu.

Gott er að gera þetta einusinni í viku og er talvan mun fljótari að þessu ef þetta er gert reglulega.