Ég var að flakka um netið og fann þessa stórgóðu hjálp = http://www.nett.is/~bjorgvin/mircindx.htm
mIRC er mest notaða spjall-forrit á netinu í dag og er í raun ekkert mál að nota það og setja upp. Hér eru smá leiðbeiningar við uppsetningu á því.
Byrjaðu á því að ná þér í nýtt mIRC á heimasíðu mIRC sem heitir mirc32
mIRC : Homepage of the IRC Chat client mIRC
Þegar þú ert búinn að sækja það, þá opnar þú það og keyrir það inn hjá þér. Þá á að koma icon sem heitir mIRC í stikunni hjá þér (ferð í Start sem er í vinsta horniu og svo í Program og þar átt þú að finna mIRC.)
Þú klikkar á það og þegar það er komið upp þá ferð þú í file sem er upp í vinstra horninu og velur options. Þá á að koma upp nýr gluggi sem heitir mirc options, þar átt þú að geta valið Connect, þegar þú ert búinn að velja hann þarft þú að filla út reitina sem eru þar.
Fyrir neðan ircservers þarft þú að velja : IRCnet: EU, IS, Reykjavik . Nema þú sért ekki á Íslandi, þá þarft þú að finna þér ircserver sem er fyrir það land sem þú ert í.
Ef þú finnur hann ekki þarft þú að fara í Add og setja upp serverinn sem er irc.isnet.is og getur hann verið á porti frá 6661 og upp í 6669.
Í full name: Getur þú sett hvað sem er.
Í E-mail addres: Setur þú inn netfangið hjá þér.
Í Nickname: Setur þú inn það gælu nafn sem þú villt vera með (einga séríslenska stafi)
Í Alternative: Setur þú inn vara nafn þar sem þú notar þegar hitt nickið er upptekið af einhverjum öðrum.
Eftir þetta átt þú að geta valið Connect to IRC Server hnappinn og farið inn á irc.
Dæmi:
Ef þú finnur ekki Serverinn í Reykjavík þarft þú að filla hann inn svona.
Til þess að hafa rétt ID nafn þarft þú að hafa fremsta hlutan af netfangiu þínu í User ID glugganum það kemur stundum fyrir að þegar þú færð þér IRC sem er búið að setja stript ofaná þá skráir það vitlaust ID.
Sjá mynd:
Þá er það að velja sér rásir.
Til er aragrúi af rásum en sú stæðsta er #iceland sem er elsta rásin og er stjórnað af Isirc sem er félag íslenskra ircara, svo eru rásir eins og #iceland26+ (stór góð heimasíða hjá þeim) sem hefur að geyma fólk á öllum aldir og allt upp í 50 ára. Ég bendi ykkur að fara inn á síðu íslenska spjallrásalistans og einnig á www.isirc.is til að lesa ykkur til um helstu reglur.
Jæja þegar þú ert búinn að tengja þig þarft þú að komast inn á rásirnar til að sjá hvaða fólk er inni.
Þú velur einhvern glugga og skrifar /join #iceland eða einhverja rás sem þú villt fara inn á, þá ættir þú að vera kominn inn á #iceland, þá kemur upp nýr gluggi með lista hægra megin og getur þú tvísmelt á einhvað nafn þar og á þá að vera komin upp einn nýr gluggi sem kallast msg og getur þú þá hafið samtal við þá persónu, það að segja ef hún vill tala við þig.
Hér er dæmi hvernig þetta lítur út og er efri glugginn sjálf rásin en neðri Status á forritnu og ég er með Showdown stript ofaná svona til að geta gert meira en þetta venjulega mIRC.
Ef það koma upp einhverjar spurningar sendið mér endilega póst. hrappur@hrappur.is