HTML hjálp

Ég var á spjallinu á formula1.is og fann þessa stórgóðu hjálp sem Unnar Erlingsson var búinn að setja þar upp og vona ég að sem flestir eigi eftir að geta notað þetta til að skrifa inn í spjall og blogger kerfi.

 

Höfundur: Unnar Erlingsson!


Mér datt í hug að skemmtilegt væri að búa til smá lista yfir algeng "html tag" (merki) sem gera fólki kleift að skreyta aðeins textann hjá sér, setja inn myndir og hlekki á aðrar síður og svo framvegis, inn í spjall og blogger. Vona að þetta komi að góðum, og ekki síður skemmtilegum notum:

ATH: Þar sem merkin "<" og ">" eru notuð sem skilgreiningarmerki í html málinu þá er eðlilega ekki hægt að hafa þau með í neðangreindum dæmum, og því notast ég við hornklofa í staðin. Þú verður því að skipta út hornklofunum "[" og "]" fyrir "<" og ">"

MUNIÐ að breyta þarf hornklofunum

Breytingar á texta:

Feitletrað: [b]texti[/b]
dæmi: Þetta er dæmi um feitletraðan texta

Ítölsk skrift: [i]texti[/i]
dæmi: þetta er dæmi um ítalska skrift

Undirstrikað: [u]texti[/u]
dæmi: þetta er dæmi um undirstrikaðan texta

Hlekkir og myndir:

Hlekkur á aðra vefsíðu:
[a href="http://www.þínvefsíðahér.com"]Textinn sem birtist og beinir á vefsíðuna[/a]
dæmi: Formula1.com

Hlekkur á veffang:
[a href="mailto:þittnetfang@eitthvað.is"]Textinn sem birtist og beinir að netfangi[/a]
dæmi: Sendu póst til formulu1.is hérna

Setja inn mynd:
[img src="http://www.slóðaðmynd.jpg"]
dæmi:

Mynd með hlekk á aðra vefsíðu:
[a href="http://www.þínvefsíðahér.com"][img src="http://www.slóðaðmynd.jpg"][/a]
dæmi:

MUNIÐ að breyta þarf hornklofunum

Höfundur: Unnar Erlingsson