|
Hér koma nokkar uppskriftir sem ég hef verið að blanda heima hjá mér. Skot: Flaming Lanborgini Drikkur sem 2 drekka í einu. Efni: Romana Sambuka 40%, Bols Blue Curacao 20,8%, Bailey´s Original Irish Cream 17%, Kahua 26,5% Áhöld: 2 snafs glös, 1 stórt rauðvínglas með góða kórónu, 1 margaríta glas, 2 rör og kveikjari eða eldspítur. Blöndun og framleiðsla: Hellir einu snafs glasi af Kahua í margaríta glasið, hellir einu snafs glasi af Sambuka í Rauðvíns glasið, hellir Bols Blue í annað snafsglasið og svo Bailey´s í hitt, réttir sitthvorum rörið gerir þá klára í að drekka, kveikir í Sambukaniu (velltir því til í glasinu þannig að það logi vel) hellir logandi Sambukaniu út í Kahua og lætur þá báða drekka úr botn margaríta glasins með rörunum (ef þeir hika þá er hætta á að það kveikni í rörinu annars er þetta hættu lítið) hellir svo úr báðum snafs glösunum í einu saman við Kahuað og Sambukað á meðan þeir eru að drekka þannig að þetta verður grænleitt (ekki of hratt eða hægt) en logar samt ennþá í glasinu og þegar þeir eru rétt búnir að tæma úr glasinu þá tekur þú annað snafs glasið og klemmir rörin saman í botni glasins þannig að eldurinn slökni áður en hann hleypur upp rörið. Heilræði: Ekki vera mjög drukkinn þegar þú ert að blanda þetta og það er skemmtilegar að vera með sem minnst ljós þannig að eldurinn sjáist vel og ekki kveikja í húsinu þegar þú ert að hella í glösinn. Einnig er það regla að sá sem drekkur hægar úr glasinu fær minna þannig að þetta er ekki spurnig um að sjúa sem hraðast. þetta er sú besta bomba sem ég hef prufað. Heili: Fyrir 1 eða fleiri. Efni: Bols Apricot Brandy 20,8%,Borzoi vodka 40%,Bailey´s Original Irish Cream 17%, Grenadin sírop (fæst í flesum kjörbúðum) Áhöld: 1 snafsglas (eða fleiri, fer bara eftir fjölda) Blöndun og framleiðsla: Hellir 1/3 vodka, smá slettu af Grenadin, hellir 1/3 Apricot Brandy og hellir varlega Bailey-inum þannig að hann verið kúlulaga í glasinu og líti út eins og heili. Það er ekki verra að hafa Bailey-sin kaldan og þessu er svo sturtað niður í einum sopa og það má ekki blanda þessu saman uppí munninum. Vanillu snafs: Efni: Smirnoff vanillu, sítrónu safi, sykur og ís (klaki) Áhöld: Koktel hristari, snafsglas, diskur (ég hef reyndar séð réttu græjuna í þetta til að setja sykurinn á glasið) Blöndun og framleiðsla: Setur sítrónusafan á diskinn, setur snafs glasið á hvolf í safan þannig að efsta brúninn á glasinu veriði blaut, setur svo glasið í sykurinn þannig að það kemur góð sykurrönd á glasið (sítrónu safinn er til að fest sykurinn á glasið), settu góðann slatta af klaka í hristarann, hellir samsvarandi magni og í 2 snafs glös í hristarann og hristir vel, sýar svo klakan úr og þá ætti að koma skammtur í 3 snafsglös (vatnið sem kom úr ísnum eikur magnið) þegar þú tekur inn skotið þá sleikjir þú sykurinn af glasinu um leið. Kokkteillar: Hreinn Sveinn Efni: Berentzen Peach Schnapps 20%, Borzoi vodka 40% (eða hvaða vodki sem er),Frissi fríski (eða daufur appelsínu safi brassi er ofbragðsterkur), Grenadin sírop, og ís (klaki) Áhöld: Koktel hristari, áfeingisskammtari, og 1/2 líters glas. Blöndun og framleiðsla: 3cl af peach og 6cl af vodka, slatti af klaka og fyllir upp með appelsínu safa. Hristir temmilega og hellir í glas tekur síropið og hellir smá slettu í glasið þannig að það sýgi í á botinn (og er það smeks athriði hve mikið) færð þér rör og hrærir aðeins í og drekkur svo með röri Aðrar út færslur: Hægt er að nota Bols Apricot Brandy til að fá annað bragð eða Passoa Ónefndur Efni: Mjólk 100% og Bailey´s Original Irish Cream 17%, ís (kaki) Áhöld: Koktel hristari, áfeingis mælir, rör og 1/2 líter glas Blöndun og framleiðsla: 6-8cl Bailey´s, góðan slurk af klaka (allt að hálfu glasi) og fyllir upp með mjólk. Hristir temmilega (passaðu þig á því að mjólkin freyðir svolítið) hellir þessu svo útí glasið og þægilegast að drekka með röri. Fer einkum vel í maga og bragast ekki ósvipað og karmellu búðingur, þó ekki alveg. Grænn Frostpinni Efni: Bols Blue Curacao 20,8%, Bacardi Carta Blanca 37,5%, Bols Apricot Brandy 20,8%, appelsínu safi og sprite Áhöld: Koktel hristari, áfeingis mælir, meðal stórt glas Blöndun og framleiðsla: 3cl Bacardi, 3cl Apricot, 1cl Blue Curacao, 6cl appelsínu safi og smá klaki. Hrist vel helt út í glasið og fyllt upp með sprite Á að bragðast eins og grænn Lurkur |